12.11.2007 | 23:17
Kínverjinn reyndi að drepa mig....
...eða þannig lagað, fór í nudd í dag og eftir að kínverjinn hafði gengið ofan á bakinu á mér hélt ég að þetta væri mitt síðasta Snúið upp á mann og smellt og brakað, er svo aum núna að ég veit ekki hvernig ég á að vera. Eins gott að maður var nýbúinn að fjárfesta í nýju rúmi sem er svo þægilegt að það verður bara gott að leggjast uppí á eftir og hvíla sig
. Ætlaði að fá 3ju nálastunguna við reykingar dæminu í dag en þá var ég ekki skráð í það hjá þeim og á að mæta á morgun. Þá bað ég BARA um stunguna EKKI nudd, enda get ég rétt ýmindað mér hvernig ég verð í bakinu á morgun púff.
Ég er ekki alveg að höndla það að hætta að reykja en ég ÆTLA
og reyki nú ekki nema 2-3 sígó á dag og mér finnst það 2-3 of mikið. Vil hætta þessu helv... alveg takk fyrir. Verð frekar pirruð
í skapinu en svo lagast það eftir eina. Ferlega er maður klikkaður í hausnum að halda að nikótínið lagi allt hehe frekar heimskulegt. Manni finnst að manni ætti nú frekar að líða betur að reykja ekki neitt, þessar 2-3 eru ekki einu sinni góðar
fæ svona dofa í hendina og svima í hausinn og hálf illt í magann en samt "verður" maður að kveikja í einni puff nú er maður bara hálfgerður ræfill.
Læt þetta gott heita í bili og bíð góða nótt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.